Wednesday, June 6, 2007
















Nei stelpur ég er ekki týnd bara geymd en ekki gleymd......uhhh vonandi :) var bara ekki í skrappstuði var bara huga að árinu hjá litla englastráknum mínum en er að klóra mig upp núna, gerði reyndar ekki síðu en gerði ein 10 kort um helgina, notast audda við þessu yndislega nýju stimplana mína sem ég er bara hreinlega ástfangin af ef það er hægt að segja........jú segjum það b ara. Finnst svo gaman að notast við vatnslitina mína og prufa mig áfram... en hér eru smá sýnishorn af þessum 10... svo vonandi fara síðurnar að renna út úr höndunum á mér þegar málin róast á þessum bæ og ég kemst í smá frí. Já vinnan er svolítið mikil um þessar mundir sem gerir það að verkum að ég hef bara enga orku á kvöldin í eitt eða neitt.... nema liggja og horfa á imbann... jei...glæsó. Svo er bara mjög skemmtilegir tímar framundan, er að fara út að borða annaðkvöld með vinafólki okkar og ætlum við á Lækjarbrekku ekkert smá notó og svo er útskrift um helgina og matur með fjölsk. minni og þá hittumst við á sunnudaginn og ætlum að notast við allan daginn að vera saman, nú þar sem foreldrar mínir eru að skella sér til ST. Petersburg í Florida í 7 vikur......... já fólk í 7 vikur :o en gaman fyrir þau ........ hitta vini sína sem þau eru ekki búin að sjá síðan þau fluttu heim fyrir 3 árum síðan. Sem sagt vinirnir eru að bjóða þeim út.......gott að eiga góða vini ;)

kv lata Heiðrún hohohoho

12 comments:

Gogo said...

Ég skil þig vel að vera ástfangin af þessum stimplum þeir eru bara geggjaðir :)

Kortin eru æðisleg hjá þér, vildi að ég væri svona klár

stína fína said...

úff Heiðrún maður veit bara varla hvað maður á að segja, en þá bara knús í staðinn ;O) en kortin eru bara geggjuð, geggjaðir stimplar :O)

Erla Rún said...

Vá, æðislega flott kort hjá þér:o)

Anonymous said...

Dugnaðurinn hjá þér, flott kort og æði stimplar

Barbara Hafey. said...

Flott kort hjá þér :)
Þú ert svei mér búin að vera iðin um helgina ;)

Svana Valería said...

getur það verið að þú eigir stimpla sem ég á ekki !!!sjokk hehe

gaman að heyra loks frá þér sæta mín ,hafðu það gott

Sara said...

geggjaðir stimplar og alveg klikkað flott kortin þín :)

Sonja said...

vá geggjuð kort hjá þér og þessir stimplar eru alveg mergjað flottir ;)

Unknown said...

Æðisleg kortin þín, svooooo flottir stimplarnir.

Taktu þinn tíma, þú veist hvar ég er ef þig vantar smá öxl.

Kv. Inger Rós

Þórunn said...

geggjuð kort!

Anonymous said...

Rosalega falleg kort hjá þér vinkona. Þú ert snillingur.

Sirrý

Anonymous said...

vá, æðisleg kort!!
þú ert bara í framleiðslu.. hihi
enginn smá dugnaður í þér :)