Sunday, May 13, 2007


Gerði þessa í síðustu viku, loksins kom ég mér í það að skanna hana inn :) ætla svo ekkert að skrappa núna næstu daga, þar sem mikil vinnutörn er að taka við hjá mér og ég er að undirbúa afmælisdaginn hans Hákons sem verður núna í lok mai...


Þessi síða er fyrsti dagurinn okkar í Grikklandi í september 2004, þetta var eiginlega brúðkaupsferðin okkar sem var líka sambland af bisness ferð... en ekki hvað ;) en var yndislegur tími sem við áttum þrjú saman.


Þetta er BG Pheobe pp sem ég er svo gjörsamlega kolfallinn fyrir. ... kannski mar sendi hana á BG gallerííð og sjái hvort hún verður valin...... hmmm.

Friday, May 4, 2007


Já og hér er hin, síðasta kvöldið gerði ég með mm límmiðum og mm grænu glimmeri. PP er Bohemia og svo brúnn bazzill bling undir í hringina og lime grænn undir myndirnar. Blómið er Prima og svo grænt bling ofan á.

Þegar ég var að raða í ferðaalbúmið mitt fannst mér vanta eitthvað við Zoomarine síðuna mín og gerði ég því þessa síðu á móti og erum við í Tivoli í sædýragarðinum, hún naut sín svo í botn.

FP PP og FP acril stimplar ( en ekki hvað ) ;) blóma og hjartabling, textinn á glæru og svo bazzill bling lime grænn undir myndirnar.
Jæja... ekkert bloggað þar sem ég hef ekkert skrappað, en núna er ég búin með tvær nýjar síður en á meira en erfiðara að koma þeim hingað inn..... þar sem borðtölvan mín er að stríða mér >:( vill ekki tengjast netinu og þar af leiðandi kem ég síðunum ekki inn á netið. En vonandi hressist hún í dag og vill leyfa mér það.... þannig fylgist bara með...því það gæti verið að það komi nýjar inn í dag eða næstu daga :)